PERFECTION! án efa með fallegri konum í heiminum og ekki má gleyma vextinum jesús Beyonce er bara með þetta, hún er engin horrengla þetta er bara flottur vel æfðu magi! og já má bara segja að þær eru með vöxt. Þær eru ekki þessar gellur sem eru ekki með neitt utan á sér og hægt er að telja hvert einasta rifbein.
Nú spyr ég bara hvort er fallegra þetta eða .....
Þetta ? just sayin.... Þessar kröfur sem eru gerðar til kvenna að lýta perfect út, þá spyr ég hvað er perfect? í tískuheiminum þykir voðalega flott að vera eins mjór og hugsast getur. Talið er að það selji betur. En hvað með hinn gullna meðalveg, það er enginn að tala um að það sé fallegt að vera feitur heldur. Aðal málið er að vera heilbrigður og hvorki er heilbrigt að vera of grannur né of feitur. Því er þá ekki aðal tískustraumurinn að vera svona meðal því þegar á endann er komið eru lífslíkur þeirra betri, þau lifa heilbrigðara lífi. Ég skrifa hérna perfection fyrir ofan því fyrir mér þá eru þessar konur með vöxt sem mér finnst flottur, skorinn flottur magi, brjóst, mjaðmir og læri það finnst mér vera flott. Tel ég perfect þurfa að vera fyrirbæri með galla. En ekki misskilja mig það er svo mjög mjótt fólk sem lifir heilbrigðu lífi og öfugt þar koma erfðir inn. En svona hugleiðing afhverju erum við ekki ánægðar með okkur, afhverju þessi stanslausa útlitsdýrkun? Ég vildi að ég hefði svarið.
Ég var að koma heim af söngkeppni MA vá hvað það var mikið af flottum atriðum misvel sungið en flest öll atriðin mjög flott! Ída var frábær og svo kom sá og sigraði Sunna í 1.H frábært atriði í alla staði átti svo fullkomnlega skilið að vinna. Ég eins frábær og ég er náði auðvitað að hella niður burn á ljósu buxurnar mínar, mér er greinilega ekki ætlað að ganga í ljósum fötum eða bara fötum yfir höfuð. Sama hvað þá næ ég alltaf að hella niður á mig þó svo ég sitji við borð og sé með smekk ég næ því samt, sumir eru greinilega óheppnari en aðrir.
Dagurinn í dag er búinn að vera hryllilegur. Skóli frá 8-4 og ég borðaði morgunmat og svo ekki aftur fyrr en klukkan hálf 5 !!! takk fyrir góðan daginn, gleymdi nesti og allt búið í sjoppunni enginn nennti í súper. Vatnið varð þá fyrir valinu og drakk ég örugglega 4 lítra af vatni þennan skóladag. Eftir að ég svo loksins komst í mat lagðist ég uppi sófa horfði á Audda og Sveppa og steinsofnaði. Vaknaði svo köld í sófanum labbaði uppi rúm og svaf þar þangað til að það kom kvöldmatur. Klukkan 8 fór ég svo á æfingu og var þetta ágætis 2 tíma æfing GUÐ hvað ég var þreytt. En vonandi verður allt betra á morgun stuttur skóladagur og förum meira að segja í leikhús og búin snemma á æfingu love it.
Sveitt og sæl
Langaði líka að sýna ykkur eina af mínum uppáhalds bloggurum hún heitir Natalie Karlsson og býr í Gautaborg. Ég myndi ekki segja að hún væri þessi týpíska stelpa að kaupa sér kjóla, pils og hælaskó. Hún er meira í buxum og jökkum og svona pínu krúttlegur töffari. Ég líka bara dýrka hvernig hún bloggar mér finnst bara eins og ég þekki hana persónulega, elska svoleiðis blogg. Anyways þá finnst mér hún geðveikt sæt og æðisleg.
Týpískt outfit frá Natalie
Mér finnst hún bara svo falleg.
En endilega skoðið hana á Nýtt eða gömlu síðuna sem er full af skemmtilegum myndum og bloggum Gamla
Strembin helgi að baki. Kepptum 3 erfiða leiki um helgina, á föstudaginn fórum við í mýrina og unnum Stjörnuna eftir hörkuleik. Jafntefli við ÍBV og tap gegn Haukum. En þessi ferð var samt skemmtilegri en margar aðrar þó svo að þetta hafi verið erfitt. Á laugardeginum skelltum ég og Iðunn okkur í kringluna og náðum við báðar að versla aðeins. Eftir leikinn við ÍBV var skellt sér í sturtu, borðað og farið á YOYO sem er btw geðveikur, gef mig samt ekki brynjuís er betri. Rúntað var síðan niður laugarveginn já mjög oft get ég sagt og gerðum við allt sem Reykvíkingar gera ekki as in : litum inn í alla bíla, flautuðum á fólk, vorum með opna glugga og öskruðum á útlendinga. Klikkaðar vorum við og ekki veit ég hvað gerðist við mig þetta kvöld en ég skemmti mér svo sannarlega. Annars er lítið að gerast bara skólinn og svona.
Bolur sem ég keypti mér í Zöru
Nýr mac varalitur Pink nouveau
Cropped bítlabolur úr h&m sem solle var að gefa mér
Skyrtan sem ég var í ídag úr veromoda i svíþjóð
Það sem ég er að lesa núna Stúlkan sem lék sér að eldinum og All american girl.
Om vi bara vore något mer
Mer än bara nästan lika snygga
Om du inte vore som de här I stan
Om du bara kunde bli som jag och Annie Hall
Lítið að gerast í dag nema skólinn frá 8-4 horfðum reyndar á eina gamla góða með james dean rebel without a cause. Var að horfa á Glee og þá kom heads will roll, kemst alltaf í gott skap að heyra það! Svo er bara að skella sér á Akureyri - FH og pakka fyrir elsku Reykjavík :)
Allt skór frá Acne sem mig hefur langað til að eiga í frekar langann tíma !
Killer sólgleraugu
Sætur
Ég dýrka Acne, allt svo plain og æðislegt langar í þetta allt og miklu meira. Þetta er allt misnýtt og gamalt en varð bara að deila ást minni á acne og því sem er á wish list. Gaman væri nú að vera rík og geta keypt þetta allt.
Dagurinn í dag er búinn að vera lítið spennandi. Ég var s.s. veik heima í dag leiðinda magaverkur, hausverkur og hiti, svo lítið annað búið að gera en að sofa og chilla. Eins gott að þetta verði búið að lagast fyrir helgina þá verður ferðinni haldið suður eins og svo oft áður að keppa! 3 leikir um helgina, fékk smá pening í vikunni svo kannski maður verði það heppin að geta keypt sér kannski eitt stykki bol. Annars er það ekki meira langaði að henda inn smá myndum af seinustu handbolta djömmum og einhverju svoleiðis :)
já þetta kemur fyrir stundum
Gleði gleði hjá Steinþóru
Helgina eftir var svo handbóvision og urðum við í 3.sæti með Bonkers skemmtilegir gallar úr spútnik hér á ferð haha
Var í þessum hjá Steinþóru keypti þennan sparkz kjól í Focus ótrúlegt en satt, næ aldrei að versla neitt þar.
Ég eins og flestir býst ég við geta ekki beðið eftir sumrinu og að það verði aðeins heitara. Við vitum það nú að það verður enginn svakalegur hiti á litila Íslandi en það verður alltaf smá sumarstemmning. Ég vonandi verð það heppin að kíkja til Svíþjóðar eða Noregs, sólbaða sig aðeins og versla svo vonandi aðeins meira! Eins og ég sagði í gær þá einkennist stílinn minn mikið í dökku og svona plain litum og kemur það greinilega í ljós hér fyrir neðan. En stefnan er allavegana að kaupa raybans og Lita skó í sumar.