-Kolbrá
Wednesday, March 2, 2011
Retro Stefson !
Can't wait, Get ekki beðið eftir að sjá þau á morgun það verður geðveikt og svo er ég líka svo heppin að vera að fara með sætum og skemmtilegum stelpum. KIMBA KIMBA KIMBA!!
Tuesday, March 1, 2011
Weekday love
AHHH! ég get ekki lýst því með orðum hvað mig langar mikið í weekday núna, langar ekkert meira en að skella mér bara í verslunarferð og gera eitthvað skemmtilegt. Ég þrái ekkert meira en að komast aðeins frá Íslandi er komin með svo mikla gubbu. Skoðið á Weekday.com :)
Beautifull
-Kolbrá
Monday, February 28, 2011
Sunday, February 27, 2011
Do I look fat in this?
PERFECTION! án efa með fallegri konum í heiminum og ekki má gleyma vextinum jesús Beyonce er bara með þetta, hún er engin horrengla þetta er bara flottur vel æfðu magi! og já má bara segja að þær eru með vöxt. Þær eru ekki þessar gellur sem eru ekki með neitt utan á sér og hægt er að telja hvert einasta rifbein.
Nú spyr ég bara hvort er fallegra þetta eða .....
Saturday, February 26, 2011
Lazy!
Leti helgi... guð hvað það er gott. Ligg uppi í rúmi horfa á bikarúrslitakeppnina life's good!
Tvær myndir af Sunnu sem vann söngkeppni MA
Í gær hittumst við stelpurnar sem voru saman í Giljaskóla og höfðum gaman fórum í singstar, borðuðum köku, nammi og tilheyrandi
Lena lærði að rokka af meistaranum
Za rockmaster
-Kolbrá
Thursday, February 24, 2011
Proud Mary
Ég var að koma heim af söngkeppni MA vá hvað það var mikið af flottum atriðum misvel sungið en flest öll atriðin mjög flott! Ída var frábær og svo kom sá og sigraði Sunna í 1.H frábært atriði í alla staði átti svo fullkomnlega skilið að vinna. Ég eins frábær og ég er náði auðvitað að hella niður burn á ljósu buxurnar mínar, mér er greinilega ekki ætlað að ganga í ljósum fötum eða bara fötum yfir höfuð. Sama hvað þá næ ég alltaf að hella niður á mig þó svo ég sitji við borð og sé með smekk ég næ því samt, sumir eru greinilega óheppnari en aðrir.
Gamla eftir söngkeppnina
-Kolbrá
Tuesday, February 22, 2011
Þreytt lítil stelpa
Dagurinn í dag er búinn að vera hryllilegur. Skóli frá 8-4 og ég borðaði morgunmat og svo ekki aftur fyrr en klukkan hálf 5 !!! takk fyrir góðan daginn, gleymdi nesti og allt búið í sjoppunni enginn nennti í súper. Vatnið varð þá fyrir valinu og drakk ég örugglega 4 lítra af vatni þennan skóladag. Eftir að ég svo loksins komst í mat lagðist ég uppi sófa horfði á Audda og Sveppa og steinsofnaði. Vaknaði svo köld í sófanum labbaði uppi rúm og svaf þar þangað til að það kom kvöldmatur. Klukkan 8 fór ég svo á æfingu og var þetta ágætis 2 tíma æfing GUÐ hvað ég var þreytt. En vonandi verður allt betra á morgun stuttur skóladagur og förum meira að segja í leikhús og búin snemma á æfingu love it.
Sveitt og sæl
Langaði líka að sýna ykkur eina af mínum uppáhalds bloggurum hún heitir Natalie Karlsson og býr í Gautaborg. Ég myndi ekki segja að hún væri þessi týpíska stelpa að kaupa sér kjóla, pils og hælaskó. Hún er meira í buxum og jökkum og svona pínu krúttlegur töffari. Ég líka bara dýrka hvernig hún bloggar mér finnst bara eins og ég þekki hana persónulega, elska svoleiðis blogg. Anyways þá finnst mér hún geðveikt sæt og æðisleg.
Týpískt outfit frá Natalie
Mér finnst hún bara svo falleg.
-Kolbrá
Subscribe to:
Posts (Atom)